fimmtudagur, janúar 19, 2006



Eitt próf búið og 3 eftir...

Við Tamara villtumst svo inn í Gap eftir prófið og þar fann ég toppinn sem mig langaði svo mikið í fyrir jól nema hann var á 70% afslætti! Ég stóðst ekki mátið enda engin ástæða til. Er den ikke smúk!

Þetta er ein margra gulróta sem teyma mig áfram í þessum próflestri. Þangað til klæðist ég fáu öðru en föðurlandinu mínu frá toppi til táar og hakka mig í gegnum námsefnið eins og göltur.

Þessi hugleiðing um gelti fær mig til að hugsa um hana Millý mína að borða gras í garði nágrannans á sumrin. Æ, það er svo fögur og fyndin sjón...*dreym*

1 Comments:

Anonymous Erla said...

Þessi toppur er algjört æði:) Passar vel við rauða hárið og bronstöskuna. Góð kaup. Ég fíla GAP. Gangi þér rosa vel í prófunum!

12:48 PM  

Sendu inn athugasemd

<< Home