Laugardags-föstudagurÞessi föstudagur er búinn að vera meira eins og laugardagur. Ég er að drekka kir. Ása er í heimsókn og við ætlum etv. að rölta út á næsta bar á eftir. Ég fór í bhttp://www.blogger.com/img/gl.bold.gif
insert bold tagsæjargöngu í dag, gekk fyrst um Ile St. Louis og svo upp að Pompidou og svo ad Montorgueil. Var í 3 klst á göngu. Maður er ekki að setja fyrir sig að ganga hérna í Frankaríki. Kíkti inn í búð á móti Pompidou og fékk þar tilboð frá tveimur mönnum um að setja andlitið mitt á netið, ég væri með svo falleg augu, jafnvel þó svo ég væri með gleraugu. Svo bentu þeir á tölvu á bak við mig og spurðu hvort mér þætti internetið ekki skemmtilegt. Jú,jú, internetið er vissulega ágætt. Svo þegar ég var ekki mjög viljug til að taka þátt í þessum leik núna, eða bara yfirleitt, laug um að ég væri mjög mikið á hraðferð, þá sögðu þeir bara "Ok, þá kl. 9 annað kvöld, við verðum hér þá!" og ég laug meira, jú, jú, sjáumst seinna, bless...Sumir Frakkar eru ekki að hika við að vilja kynnast manni.
Ég endaði á því að fara í bíó í gær með Ásu og Írisi. Komst þangað einhvern veginn þó svo maturinn sem ég eldaði hafi verið viðbjóður (100 % chilli og óætt) og kirinn hafi farið eitthvað skakkt niður. Fórum á
Les fréres Grimm -version originale (smá veruleikaflótti) og hún var hrikalega góð. Hún batnaði alltaf og batnaði og undir lokin fannst mér hún algjört meistarastykki. Heath Ledger var virkilega góður.
Á morgun er svo vínsuppskera á einu vínekru Parísar í Montmartre, eitthvað húllum-hæ sem endar með flugeldasýningu kl. 9:30. Við ætlum að taka þátt í þessu, fá okkur drykk og svona og fara svo í partý.
Kannski maður skelli sér bara út á Cosmos barinn (það cosmos-lega við hann eru bleiku stólarnir, sem eru frekar speisaðir í laginu, sem standa fyrir utan alltaf, hress staður og afar moderne á kitschaðan hátt) núna og eitthvað. Eða hreinlega uppí Bastilluhverfið að hitta eitthvað franskt fólk sem Rósa þekkir... Decisions, decisions.
Ciao.