Ég er alltaf að gera eitthvað nýtt þessa daga, eða allt þetta sumar hefur verið þannig -, koma á nýja staði, prófa nýja hluti etc. Mjög gaman. Í dag fórég í Bókavörðuna hans Braga á Klapparstíg og fjárfesti í 2 fjársjóðsbókum á lítinn pening : Kennslubók í Frönsku (gefin út 1949, stafsetningin er skv. því, z-an enn þá góð og gild, ávalt falleg, enda prýðir hún nafnið mitt) og Larousse de Poche, frönsk ensíklópedísk orðabók í kiljubroti, gefin út 1979. Samtals kostaði þetta um 1000 krónur. Og það er bara gaman að eiga notaðar bækur, bækur með sál. Önnur þeirra er árituð, í henni stendur nafn fyrsta eigandans, árið og staðurinn, Lyon 1985. Ég keypti mér einmitt eina bók í svipaðri bókabúð í París, svona notaðar bækur bókabúð sem heitir Shakespeare & Co. og margir þekkja eflaust (fræg fyrir stimpilinn sem settur er í allar bækur sem þar eru seldar), en í bókinni sem ég keypti var stuttur ástaróður til þess sem fékk bókina að gjöf. Mjög fallegt. Á frönsku líka.
Og í bókabúð Braga eru bækurnar á svon au.þb. raunverði, 200 til 1200 krónur. Bækur eru einskis virði og eru ofurtollaðar og álagðar hérna. Kosta varla undir 1000 krónum. Svei mér og öllu því!
Jæja, ég sé ykkur seinna! Ciao for now.
Og í bókabúð Braga eru bækurnar á svon au.þb. raunverði, 200 til 1200 krónur. Bækur eru einskis virði og eru ofurtollaðar og álagðar hérna. Kosta varla undir 1000 krónum. Svei mér og öllu því!
Jæja, ég sé ykkur seinna! Ciao for now.