fimmtudagur, júní 30, 2005

Ganga + HÍgym + jazz + sveit + crochet

ég gerði svolítið nýtt í dag. áður en ég fór í vinnuna skilaði ég bílnum af mér til vinar míns góða í Espigerði og gekk svo niðrí bæ. ég var orðin svolítið sveitt er ég var komin á Suðurgötuna og auk þess var ég á eftir fyrirgerðri tímaáætlun. þá datt mér í hug vinin í eyðimörkinni sem Háskólagymmið er : þar geta stúdentar sturtað sig ókeypis! þvílík snilld. ég gekk þar inn og sagði "ég er í Háskólanum, má ég fara í sturtu?". og hvort ég mátti. fínustu sturtur og hárþurrkur. svo tölti ég í bæinn og í vinnuna. það er svo gaman að fara út fyrir venjulega viðkomustaði sína og prófa nýja staði. það er gaman að vita að enn hafi maður ekki komið á alla staði þessarar borgar.

í kvöld er ég að fara á smá jazz en það er nú meira hvað jazzinn blómstrar hér í sumar, margir tónleikar á kvöldi.

um helgina fer ég í sveitina mína en þar ætla ég að hekla mjög mikið. ég lærði það í gær og líkar vel. kallast "crochet" á ensku og mig grunar það sé franska upphaflega. gaman að þessum orðsifjum.

að lokum vil ég svo bjóða velkomna að skjánum nýja lesendur, hvort sem þeir kalla sig Örnólf eða annað. enjoy! :) ciao people.

mánudagur, júní 27, 2005

Despó in One Night

allt að þakka dásamlegum samstarfsmönnum mínum er ég nú stoltur eigandi the complete series af Desperate Housewives þáttunum. Ég ætla að horfa á þætti 12 - 23 í einu næstu kvöld. Ef þið viljið get ég sagt ykkur hvað gerist :)

ég átti góða helgi. á laugardaginn var útskrift með eðalfólki, dans á Kúltúra og eftirpartý á Ásó, toppað með hágæða faista kaffi Mr.Air. fór að sofa kl. 8 um morguninn. var samt nógu hress til að ganga vetur í bæ, alla leið út á Granda. fyrsta alvöru megaganga sumarsins. nú munu aðrar fyrlgja. svo var keyrt í vinnuna í morgun sem var afar huggulegt.

núna : vinna og svona. ætla að læra að hekla í kvöld.

à plus...

laugardagur, júní 25, 2005

Laugardagur

Í dag vil ég byrja á því að minna ykkur á ástæður þess að þetta blogg er jafn slappt og raun ber vitni :

1) það er sumar og ég nenni ekki að skrifa allt sem gerist og aðrir nenna ekki að lesa það heldur.

2) á veturnar er líka of mikið til að standa í þessu.

3) þetta blogg er upphaflega hugsað sem vettvangur fyrir mig og mína er ég er erlendis stödd. mun þetta vera höfuðástæðan. í haust færist eitthvert fjör í leikinn hérna vonandi...kannski...jú, örugglega.

annars er ég hress bara. dagvaktirnar fara bara vel í mig. á svolítið erfitt með að ná strætó á réttum tíma en ég stefni á að vinna upp svefn á morgun og takast að mæta á réttum tíma.
á fimmtudaginn var spilaði ég badminton og fór svo á Pravda á jazztónleika. ég veit reyndar ekki hvað bandið heitir sem var að spila þar sem þetta var alveg spontanious ferð en þeir stóðu sig vel. og það sem meira var þá fannst mér Pravda vera hinn´besti staður fyrir þessa late night jazz stemmningu. var hissa á því. hef ekki komið þarna inn nema á efri hæð í afmæli stöku sinnum og svo í fyrra er ég varí fylgd með fólki frá Egilsstöðum af einhverju ástæðum og þá sátum við í einvherju svona kókaín bakherbergi með ýmsum plebbum. ekki svo ánægjulegt, en afar forvitnilegt. þannig að ég mæli með þessu á fimmtudagskvöldi, Pravda. Svo er það bara einn Breezer á Hverfis í kvöld! ;)
Í dag útskrifast svo hún Rósa og hún fær sérstakar hamingjuóskir frá mér. Ég ætla að gefa henni gjöf, skála og gleðjast með henni í kvöld. Lífið á sumrin snýst ekki um annað en að skála með fólki og vinna eftir skálina og það er bara þokkalegt! :)

þriðjudagur, júní 21, 2005

ég vil vinna milljón!

eftir að hafa verið með krossaða fingur undanfarna daga er ég hef látið renna visanu kom að því í dag að heimild fékkst ekki fyrir frekari úttektum á því. framundan eru því hundleiðinlegir og með eindæmum blankir dagar hjá marsilinni. nákvæmlega 9 dagar í helvíti en þá oma mánaðarmót. að auki borgaði ég þetta aumingjans salat sem ég reyndi að kaupa með kortinu með krónum sem ég fann í sparibauk heima. fékk lánaðann tíkall hjá kunningjakonu til að þetta dygði nú. síðustu aurarnir. fjárans og skrambans. svo eru ýmsar skuldir á leiðinni. vona að ég festi svefn fyrir þessum peningaáhyggjum sem þjaka mig. ég held ég skoði vandlega allar smáauglýsingar blaðanna og framselji mig í einhverja aukavinnu. hvernig getur maður annars grætt mikinn pening á skömmum tíma? ég ert til í að vinna vel.

auma líf...

mánudagur, júní 20, 2005

hola people!
gleðilega þjóðhátíð um daginn. marsil er heldur upptekin þessa dagana við leik og vinnu. átti yndislega þriggja daga partýhelgi. Þjóðhátíðardagurinn var eins og ævintýri, ægifagur og sólríkur. hann bryjaði með sól kl 6 um morguninn í Hljómskálagarðinum og þegar ég vaknaði var enn sól. gettu grand keppnin var ekki nema 8 stiga þessa vikuna og 16 stiga fyrir sigurvegarann. enn eftir 2 vikur er Skotland þemað og liðið mitt er þegar byrjað að æfa. kassinn skal verða okkar!

meira seinna. þarf að vinna núna.

fimmtudagur, júní 16, 2005

DHlynette
Congratulations! You are Lynette Scavo, the
ex-career woman who traded the boardroom for
boredom, mixed with moments of sheer panic as
the mother of four unmanageable kids.

Which Desperate Housewife are you?
brought to you by

miðvikudagur, júní 15, 2005

X & Y

ég var andvaka í nótt. fór því að lesa Douglas Adams, The Hitchiker´s Guide to the Galaxy. keypti allar bækurnar í einni bók þarna um daginn. og er að lesa n°2 núna. mikil gleði og mikið grín. er svolítið mikið þreytt núna þó eftir um 5 tíma svefn.

en það er nú meira hvað allir drífa sig niðrí miðbæ er sólin skín. er búin að hitta svo marga í dag er ég hef verið að skjótast milli húsa.

Þjóðhátíðardagurinn verður haldinn í guðs gærnni náttúrunni. Badminton mun koma þar við sögu ef ég fæ einhverju um það ráðið.

Keypti nýja Coldplay diskinn, X & Y, í gær og hann er æðislegur. Öll lögin eru góð, án gríns.

Ég mun neyðast til að halda svo áfram í geisladiskakaupum því nú hefur Röyksopp gefið út nýjan disk sem á að vera góður. Þetta skildi ég er ég las í frönsku tímariti í nótt. Húrra!

ciao.

mánudagur, júní 13, 2005

geggjuð stemmning!

Alltaf sama stemmningin hérna í félagsmiðstöð geðveikra í A-18. ég er farin að halda að öll geðlyf á landinu séu uppseld. í kvöld hafa 2 menn sem alla jafna líða hér inn og út sljóri í augunum af deyflyfjum verið með miklar og á stundum háværar yfirlýsingar. Annar hrópaði nokkrum sinnum "varstu að troða Dananuim í píkuna á þér?!" og hinn fór að segja mér að heiminum öllum yrði stútað fljótlega og að engillinn hans hafi birst hinum tíðar undanfarið því til sönnunar.
Guð hjálpi þessu fólki. Ég spurði bara hvort hann vildi kvittunina og sagði "takk" og "bless þá".

Ég komst að því í gær að ég er sjúklega góð í badminton. ég mun iðka þá íþrótt grimmt í sumar. ég er með 2 öðrum í félagi að spila badmís einu sinni í viku og ef þú ert einhleyp stúlka máttu koma með einhver tíma. bara panta tíma fyrst.

dagurinn í dag hefur verið jafn dásamlegur og undanfarnir dagar. eftir annasama helgi svaf ég út í morgu, lá svo í sólbaði í garðinum í næsta húsi og fór í sund líka. mikil brúnka í dag. varið ykkur á brúnkudýrinu! nei, annars finnst mér ég ekki vera svo brún og ég held ég hafi rétt fyrir mér. ég er enda af hvítum komin eins og maður segir.

yfir & út.

laugardagur, júní 11, 2005

Heimkomin er ég

Gott fólk, ég er komin heim og er afar sátt við það. Sérstaklega teigaði ég ískalda vatnið. Það jafnast ekkert á við þetta lifandi vatn okkar, en flóran í því gefur því þetta góða fríska bragð.
Svo er Ísland dásamlegt á sumrin og ég vildi hvergi annars staðar vera núna. Fólk er farið að tylla sér á Austurvöll nú þegar.

Þarf að vera dugleg að fara í sund til að halda taninu. Er búin að kaupa mér 10 skipta kort nú þegar :)

Ég var annars í Nauthólsvíkinni um miðnættið í gær og þar var hópur af flissandi Tælendingum. Þau voru afar hress. Kannski voru þau að hlæja að þessari litlu gerviströnd okkar.

Ég skemmti mér annars afar vel þarna á Spáni. Þetta var slökun út í eitt, lágum í sólbaði allan tímann. Líkaði einkar vel að synda í sjónum, láta ölduna skola manni á land. Reyndar var sandur í öllum vitum og í baðfötunum lengi á eftir.

París er þó besta borgin. Þangað mun ég sigla 15. september ca. Ahoy!

Tónlist þarf að fá sérstaka færslu hérna næst en ég er á kafi nýrri frábærri tónlist.

Á plus tout le monde!

miðvikudagur, júní 08, 2005

Ísland á morgun. Fer beint í sund tegar ég kem heim.

Hlakka til ad drekka vatnid.

See you.