laugardagur, maí 28, 2005

Hola!

er a Spani. her er sonnun tess : Ññ ? ¿ Ç

alls konar stafir. vei!

sol og stud. hitabylgja í Europe. meira seinna, er ad klara kvótann a internetinu!

hilsen til ykkar klakabúa :)

ciao. eda adios eins og menn segja her.

miðvikudagur, maí 25, 2005

Örlögin og lífið

jiminn, ég vissi að visað væri vel útþanið en ekki sovna. var á heimabankanaum og er í losti. hvernær er aftur útborgunardagur? er það ekki á þriðjudaginn? guðminn, hvernig á ég að fara að þessu... *gúlp* ég tók óvart heldur geist flipp þarna í París síðustu dagana þegar ég týndist ein í bænum.

sá Star Wars í gær. Anakin var rosalegur. mér fannst heldur erfitt að horfa upp á hann þarna brenna upp. og allt þetta gerði hann í raun fyrir ástina og vegna þess að móðir hans dó er hann var ungur. aumingja hann. ég hef samúð með honum. hann skapaði í raun sjálfur þau örlög sem hann dreymdi með því að reyna að breyta örlögum sínum. rosalegt.

maður lendir nú stundum í því að finna hluti á sér, dreyma fólk sem er að dreyja og finna þegar eitthvað nýtt er að koma inn í líf manns. you are not alone Anakin!

ég er annars að fara út aftur á morgun, nú er það Espagne með stuttri viðkomu í Morocco. ég bið bara að heilsa people, ciao.

mánudagur, maí 23, 2005

Mia = moi = 22 ans

eldri en aldrei frískari! þema þessa afmælis er mynta. ég fékk gjöf frá Bez systur, flotta göngusandlala svo ég verð walking on air á Spáni.

mig dreymdi auðvitað um París í nótt og ég er enn þá hátt uppi og með Frakkland í æðunum. en þetta er ekki slæmt case af sjávarþorpssyndrómi. Ísland hefur nú sína kosti, t.d. vantið sem er viðbjóður í Paris.

ég hef reyndar fundið það út að það mun engan veginn ganga að halda nafninu mínu á meðan ég bý úti. þessu komst ég að er ég fór á Starbucks á laugardaginn. þar er kaffið kallað upp eftir nafni. og ég sagði fyrst við afgreiðslugæjann að ég héti Þórunn en hugsaði um leið að þetta myndi aldrei ganga. hann horfði á mig sljóum augum og skildi ekki. þá sagði ég "Tota" og hann hló að mér. það er eitthvað svona afríkulegt nafn sem screams innflytjandi. ekki nógu töff. en ég hef rætt þetta við nokkra og hugsað málið og komist að því að ég muni kalla mig Mia þegar ég þarf að segja til nafns. það er stutt og alþjóðlegt og býður upp á skemmtilega orðaleiki.

annars er nýjung á leiðinni á síðuna, ég ætla að reyna að setja inn myndir frá ferðinni. ciao for now, þarf að njóta dagsins.

sunnudagur, maí 22, 2005

síðasti klukkutíminn sem 21 árs unglingur.

ég er komin heim.

ég er komin með Erasmus styrk.

Ása líka.

vonandi líka hinar stelpurnar.

nú er það að pakka upp og þvo.

en fyrst sofa.

bonne nuit.

föstudagur, maí 20, 2005

PARIS

hae eg er i paris og eg er astfangin af henni. eg er buin ad gera margt og labba mikid. frakkar elska mig lika. lifid er frabaert. eg tarf ad eyda meiru i fot og tannig og aetla i Les Halles nuna til ad redda tvi. ibudin min i 15.hverfi er rugl flott. algjor snilld. eg aetla ad kaupa nokkrar fernur af raudvini og smygla inn svo tid sem erud god vid mig getid latid ykkur hlakka til.

vid frettum af Selmu og teim vonbrigdum i gaer er vid vorum a Pont des aRTES AD DJUSA. SYND OG SKOMM.

mig langar aldrei til ad fara hedan en eg neydist til tess a sunnudag. a bientot og bisous! :*

sunnudagur, maí 15, 2005

Nýju fötin keisarans

hæ. ég er að fara á morgun. kannski finn ég e-ð netcafé og kannski mun ég hafa tíma til að setjast þar in og senda ykkur línu. ég þarf reyndar að senda svo mörgu postkort og eitt afmæliskort að ég sé fram á að bloggís muni líða fyrir það.

ég vona að ég fái ekki jafn alvarleg einkenni sjávarþorps dvalarheilkenninsins "íslendingur" og ég fékk í fyrra þegar ég kom frá DK. reyndar mun ég ekki hafa neinn tíma til að sitja tómeygð í næstu viku og auk þess er ég að fara bráðum ... ójá.

ég fékk einmitt mail frá skólanum mínum úti, frá Alfonso e-m sem starfar við Paris 4, með e-m umsóknareyðublöðum og feliru. ég veit ekki alveg hvað þetta gestion þýðir en etv. hef ég fengið þar pláss á skólabekk.

en titill þessarar færslu vísar til þess listamanns sem gjarnan er talað um að hafi haft hver mest áhrif á íslenska listamenn upp úr 1970, þ.e. á nútímalistamenn okkar. hér er að sjálfsögðu verið að tala um Dieter Roth, aka. "Rotharann". ég fór að sjá sýningarnar í gær (skoðaði flest allt sem í boði var!megadagur). ég verð nú að segja að mér finnst þessi list hans svona hálf...eitthvað. í uppáhaldi hjá mér er verk sem hann nefndi "Blabla from M&T kilometers". Þarf að segja meira? áberandi voru líka verk sem hétu eitthvað scheisse.

ég hitti líka Óla forseta og sagði 3 orð við hann. hann er fínn.

ég hef ósköp margt að segja en ég verð að hætta að blaðra og fara að pakka og svona. ég bara bið að heilsa, à plus tard mes amis! ciao! ;)

föstudagur, maí 13, 2005

Oprah um Ísland o.fl.

Hæ allir. Ég er komin heim eftir sóttkví á hótel Sólheimum. Mun sakna rafstýrðs nasadýnu rúmsins en það er nú samt alltaf gott að koma heim.

Fór í bíó að sjá Napoleon Dynamite á miðvikudaginn. Mér finnst hún frábær. Hún náði mér alveg. Þó svo ég hafi fundið fyrir mikilli ógleði þegar fólk smjattaði og kjamsaði með opinn munninn á misgirnilegum steikum og öðrum mat þá var þetta eins og ég segi algjör geníus. Þetta var annars nokkuð merkileg bíóferð að því leyti að ég og bíófélagi minn vorum eina fólkið í salnum. Ég mæli með því. 6-bíó er vanmetið.

Á morgun vona ég að þið séuð að fara á listasýningarölt eins og ég. Það er bókstaflega allt að gerast í listinni á morgun - ef einhver dagur er tilvalinn til að fara á söfn og gallerí þá er það morgundagurinn. Listahátíð að opna eins og þið eflaust vitið. Eitt afar heimskulegt vil ég nefna í þessu samhengi en það er að á sunnudaginn opnar sýning með Gabríelu Friðriksdóttur og Matthew Barney á Akureyri. Akureyri! Hvað á þetta eiginlega að þýða spyr ég? Er verið að reyna að skáka okkur borgarbúunum við í smartheitum? Ég heimta að þessi sýning komi líka til okkar. Djös dreifarar...djók.

Sáuð þið annars Oprah þáttinn um Ísland? Sá hann tvisvar þar sem allar þessar helstu stöðvar má sjá á hótel Sólheimum. Ég verð að segja að ég vorkenndi Svanhildi svolítið. Oprah varð skyndilega eitthvað svo full eftir að hafa sturtað í sig þessu brennivínsskoti og greip endalaust fram í fyrir henni. Og svo finnst mér þetta líka kjánaleg kynning. Eins og það séu bara einstæðar mæður og hórur sem búa hérna. Ég get sagt ykkur að ég er hvorugt. Enda er ég að fjórðungi ensk svo etv. er ekkert að marka.

Weelí smellí. Verð að þjóta útí buskann. Er með einhvern galsa sem er að stigmagnast inní mér og verð að fá einhverja útrás. ciao.

þriðjudagur, maí 10, 2005

morgunhæna

ég veit ekki hvers vegna en ég er að blogg núna. ákvað að opinbera undrun mína á þessum undarlegu aðstæðum mínum fyrst ég er í tölvunni á annað borð. ég er haldin einhverri svefnbrenglun. ég vaknaði klukkan hálfsex að drepast úr hungri og fór á fætur, endaði svo á því að þvo þvott, strauja föt og senda email sem ég þurfti að senda. núna er klukkan 7 og mig er farið að sifja ögn reyndar. ég held ég reyni að lesa tískublöð og sofna. vona að mig dreymi ekki kölska eins og í nótt. ég meika ekki að vera haldin bæði ofskynjunum og svefnbrenglun. það er komið sumar en ég er ekki alveg í jafnvægi, en það gætu ýmsir þættir spilað þar inní. ( þið sem ekki þekkið til þá vil ég taka það fram að ég er ekki með geðhvörf og á geðlyfjum, ég er ekki geðveik reyndar...síðast þegar ég vissi)

en ég held ég segi góða nótt....*geisp*

PS : og haldiði ekki að fyrrverandi fyllibyttan og núverandi metnaðarsjúklingurinn minn danski ástmaður sé að fara að hitta Völlu Sverris utanríkisráðherrínu? nú dámar mér... litli snillingurinn :)

mánudagur, maí 09, 2005

mánudagshugvekja með svarinu við tilgangi lífsins

ég var að breyta hérna á síðunni. ég var að skrifa nýtt inn í músíkumfjöllunina (sjá neðar) og svo eru nokkrar nýjar myndir eins og sjá má og að auki eru nýir tenglar á heimasíður hljómsveita. þær síður eru alltaf stórkostlega flottar og vel gerðar með flash og alles.

þrátt fyrir að hafa hrakist milli staða sem voru þetta kvöld skítapleis (=Sirkus, Kofinn og Prikið) á frekar merkilegu night on the town á laugardaginn endaði kvöldið jafnvel og það hófst, ef ekki betur bara. merkilegt hvernig hlutir gerast stundum.

svo er ég að vinna á kvöldin og er hress. ég mun reyndar þurfa að búa hjá systur minni í 2-3 daga vegna pestarskammar sem kom upp í sumarbústaðaferð hjá parentunum um helgina. þegar þau koma heim verð ég að flýja heimilið mitt til að smitast ekki. en systir mín á 7 milljón sjónvarpsstöðvar og öll þessi helstu þægindi, býr nær bænum og öllu, er hinn besti félagsskapur og eldar eins og Jaimie Oliver - nema í fötum þó.

þetta allt held ég að komi niður á einum og sama boðskapnum sem ég vil enda þessa mánudagshugvekju á : úr mörgu slæmu getur upphafist eitthvað enn þá betra en gott. ciao.

föstudagur, maí 06, 2005

Frelsi!

prófin eru búin gott fólk! ég er nýstigin út úr síðasta prófinu, er frelsuð og veit ekki alveg hvernig ég á að haga mér, er búin að gleyma hvernig það er að hafa ekki eitthvað hangandi yfir höfðinu sem þarf að klára...ég held að núna á eftir sé mál að skoppast í byen og grípa sér eitt gott hvítvínsglas með blúbba nokkrum.

ég er annars að hlusta á tónlist núna af "my whish-list" á amazon. er svona að átta mig á hlutunum. voða er þetta gaman.

eftir rétt rúmlega viku fer ég að skoða verðandi heimili mitt í París. Það er glæsileg lúxusíbúð sem af lýsingunni að dæma er svona 40 fermetrar og á að rúma tvo í 2 herb., eldhúsi og baði. pant vera í herberginu með klósettinu!!!
þetta er víst bara annar standard, eins gott að fara að undirbúa sig. mun taka nokkrar æfingar i sumar, mun flytast inn í skápinn i herberginu mínu af og til til að venjast innilokunarkenndinni.

ég sem hélt að Apótekarinn væri sýndur í kvöld í Óperunni en svo er ekki víst. held samt að það sé frábær sýning sem gaman er að sjá. blessó! er farin að drekka í mig eitthvað vit.

fimmtudagur, maí 05, 2005

Nördaspjall

gærdagurinn lagaðist heilmikið eftir að ég lagði mig um stund. þetta er gott heilræði að muna : maður vaknar alltaf í örðuvísi skapi en maður fór að sofa í.

ég sem sagt fór og reytti arfa með Jósefínu og hinum lúllunum í hverfinu á sameiginlegum hreinsunardegi. svo fengu allir pulsu í verðlaun. mikið stuð.

svo var skyndiákvörðun nokkurra skytta að fara í bíó á frumsýningu eða forsýningu (veit ekki) á The Hitchhiker´s Guide to the Galaxy. Hún er æðisleg. Fyndin og leikararnir eru pjúra gæði og passa allir fullkomlega í hlutverkin. Farið og sjáið þessa mynd! Ég held ég kaupi mér The Complete Hitchiker´s guide eftir Douglas Adams núna um leið og prófin eru búin. hef bara lesið þessa fyrstu bók. Það er gaman að svona spaceævintýri. einu sinni horfði ég alltaf á Deep Space þættina og Enterprise áður en lúllinn sem leikur skipstjórann núna kom. fíla hann ekki.
ójá. þetta ætti að halda mér entertained þangað til Harry minn kemur út í júlí.

frönsk listasaga er hreint frábær skemmtun. best að rúlla þessu upp! nördaprinsessan over & out!

miðvikudagur, maí 04, 2005

óheilla dagur

fór í próf í morgun og er nú í smá spennufalli. er að ryksuga til að ná úr mér spennu. ætla líka að sofa í sömu tilraun. þegar ég kom úr prófinu fékk ég þær slæmu fréttir að ég hafði ruglað saman Rafael og Tizian sem er afar ömurlegt og heimskulegt. er frekar pissed off. ég gæti þó alveg röksutt ástæðu þessa ruglings en það myndi hljóma þreytandi fyrir marga. annars gekk þetta vel bara.
fór á Te&Kaffi með Perlís eftir prófið og rölti svo um bæinn smá. Sá ýmislegt en ég er orðin að samansaumuðum nískupúka sem ekkert vill kaupa. tók bara strætó heim. í strætó sat gaur fyrir framan mig sem lyktaði mest illa. frekar slöpp strætóferð.
svo eru geisladiskarnir mínir fastir í tollinum og eitthvað bölvað rugl sem er ekki að gera mig káta. fékk líka tvo leiðindagluggapósta og svo er fékk ég eimail um að etv. sé ekki pláss fyrir mig í Paris 4 svo ég gæti neyðst til að fara í 10 sem er ekki málið! ég get ekki hugsað þetta til enda...

að auki er þetta bölvaða icelandair company eða grúp eða whatever bnúið að hækka ferðina til Parísar...hvað er næst ég bara spyr?!

ég veit ekki hvað er með þennan dag en ég hef það á tilfinningunni að þetta sé óheilladagur. held ég haldi mig heima bara.

mánudagur, maí 02, 2005

Gleðilegan maí!!!

Já, maí er besti mánuður ársins.

En fólk, hér hefur dagskrárliður um tónlist á ný fengið sess. Scrollið niður til að lesa um mína músík.
Annars nenni ég ekki að tala um lífið því ég man ekkert úr því núna. Get ekki alveg einbeitt mér hérna.

Spádómur minn um Erik rættist annars í Kröniken í gær. Það var ekkert sem hægt var að gera við þessa vonlausu persónu lengur svo hann var látinn taka skrefið inn í eilífðina. Blessuð sé minning hans.

Þetta var frábær helgi annars. Pabbi á afmæli í dag og það var smá gilli hér í gær. Hver elskar ekki gilli? Ég bara spyr. Svo á ég afmæli eftir aðeins 20 daga. Afmælisveislan mín verður í Nauthólsvík. Þar verður grillað eitthvað rugl á einnota grilli og skálað í píkubjór. Þetta er orðin hefð Kögurselsmæra og Kópavogsmærar. Sykursætt og gott. Stefnan er tekin á að hjóla heim í ár.

Æ, ég held ég haldi nú kjafti. Ég er of heilaþvegin af listasögurugli til að fúnkera eðlilega. Bless í bili þá.