Gleði dagur!!!
Nú er loksins stund léttis og öryggis runnin upp hjá Tótunni : hún á pening. ég átti bara 60 krónur fyrir nokkrum klst en nú á ég 60 ÞÚSUND krónur! og á enn von á launum frá einum aðila. *púffeddí-púff* (=léttisandvarp)
mér líður eins og ég hafi afrekað algjört kraftaverk með því að lifa í næstum heilan mánuð á aðeins því klinki sem fellur til í kringum mig.það sem bjargaði mér er
a)buddan hennar mömmu sem stundum gaf mér hundrað kall
b)buddur þeirra Smerils og Jósefínu sem leyfðu öreiganum að djamma á kredit eitt kvöld
c)sparibaukurinn minn sem ég safna krónum i (315 kr þar)
d)að ég lifi á foreldrunum
e)klippikortin hjá Tárinu og dúkahnífur
f)og að lokum happaþrennan sem ég fann og var m 200 kr vinning. Guð að tala til mín þar.
í gær fór ég einmitt í sjoppuna á Lækjartorgi og skipti happaþrennunni minni. það var svona síðasta trompið,sparireikningurinn. eins gott að það var útborgun daginn etir, annars hefði mín þruft að grípa til dósasöfnunnar. sem hefði reyndar gert góða hluti, maður fær þúsundir fyrir það.
það sem mér finnst downside við þetta fjármálastúss er að ég þarf að byrja á að borga skuldir mínar og kaupa mér helvítis rauða kortið. þarna fara 20.000 strax.*gna* ætla að spara brjálæðislega. þið fáið öll föndraðar jólagjafir!
en nóg um það. farin að lesa. bless.