ófædd börn
|
miðvikudagur, júlí 28, 2004
fimmtudagur, júlí 22, 2004
Bö!
Hæ. Hvað segist? Segi allt fínt. Er á lífi. Er í fríi frá tölvum. Er bara að í tölvu núna til að sækja drög að stundarskrám. Sem lítur massavel út. Er alveg sjúk í skólann, eins og sumir myndu orða það J Ýkt nett! (*gubb*)
Annars er ég sitthvað að spá þessa dagana. Er að fara út úr bænum næstu tvær helgar, annars vegar í sveitasæluna upp í bústað og hins vegar í svallið á Akureyri til Erlu. Er annars að lesa bók, Spútnik ástin eftir Harakami, og svo er ég að reyna að skilja eitthvað í portúgölsku. Er með svona “teach yourself portugeese” sett og líka phrasebook. Þetta er mjög áhugavert. Hef veriðað hlusta svo mikið á portúgalska tónlist, verð að skilja eitthvað í því sem þau segja. Fallegt tungumál.
En hvað segið þið? Ekki allt gott að frétta? Á plus tard...

mánudagur, júlí 12, 2004
elsku fólk, þið vitið að ég er í semi-sumarfríi frá þessu tölvurugli (þó svo þetta sé sumar með skítalegu veðurfari, kem því hér með á fram færi að ég er afar óánægð með veðrið hingað til og ég krefst þess jafnframt að breytingar verði þar á) þannig að það er bara eðlilegt að ekkert gerist hér á marsil svo dögum skiptir.
Það þýðir samt ekki að það sé einhver lognmolla í lífinu. Nenni mbara ekki að segja frá því. Verð að þjóta, ciao!

laugardagur, júlí 10, 2004
Sjór
Er við það að vinna frá mér allt vit. Vann 13 tíma í gær og í dag mun ég vinna 12 tíma. Slíkir vinnutímar eru alls ekki heilnæmir og beinlísnis sálardrepandi. Þessir löngu vinnutímar virka líka afar illa á heilann í mér að því leiti að ég verð tóm. Man ekkert hvað gerðist í vikunni. Hmmm...
Las það í Birtu í morgun að kaffi ylli minnisleysi. Þetta hlýtur að vera rugl. Get ei hugsað mér að hætta að drekka kaffi.
Allavega. Eitthvað af atburðum vikunnar er nú senn að rifjast upp. Kvikmyndaklúbburinn Good old shit (!) heiðraði minningu Marlon Brando og horfði á myndina On the Waterfront.
Þetta er mjög góð mynd og ég mæli bara með henni. Ég er samt alveg ný í þessum gamala-mynda-bransa en ég held að núna reyni ég að væða mig soldið. Næst ætlum við líklegast að horfa á James Dean mynd. Merkilegt einmitt hvað þeim svipar nú mikið saman, Marlon og James.
Þetta er einmitt eitt besta atriðið að mínu mati. Þarna er Brando að skjalla stúlkuna soldið, jórtrandi tyggjóið sitt með ákefð, og spyr hana í lok samtalsins hvort hún vilji kannski hitta hann aftur. Stúlkan svarar svo ágætlega og spyr "What for?" Brando horfir á hana lengi með mögnðuðum svip sem segir svo þúsund sinnum fleira en orð. Jórtrar og er eiginlega bara orðlaus. Bara best. Kannski maður hafi þessa ágætu setningu á bakvið eyrað og noti hana við tækifæri.
En í kvöld ætla ég að gera eitthvað annað en vinna, þeas fara í partý. Það var einmitt það fyrsta sem ég hugsaði er ég vaknaði í morgun: Partý. Svo hugsaði ég "Þetta þýðir að ég fer ekki að sofa aftur fyrr en eftir rúma 20 klst" En lífið er ekki til að sofa. Eins stendur utan á kaffibollanum mínum sem keyptur var í Tiger "You can sleep when your dead!" Látum það vera lokaorðin núna. Skrifa aftur þegar ég er ekki svona heiladauð og leiðinleg. Ciao.

sunnudagur, júlí 04, 2004
Klapp-á-koll syndrómið
Djöfull er þýska ljótt tungumál. Og það sem er verra en þýska eru þýskumælandi þýskir (dah!) túristar með svitalykt. Tuldrandi þetta með öllum ess-hljóðunumm...*fnæs*
Já,já og sei. Ég er annars rosa hress. :D Leikurinn í dag og svona, mikil spenna. Hef nú þegar unnið 2 bjóra. Stína koksaði aldeilis á því, veðjaði á Tékkana, sem er nottla bara rugl. Ófyrirsjáanleg keppni. Skál fyrir því! ;) En hins vegar verða Portúgalir að vinna þetta svo ég tapi ekki bjórnum mínum til Bergs sem af einhverjum ástæðum veðjaði mjög snemma á Grikki. Undarleg slembilukka þar hjá manninum.
Kíkti annars á Kaffibarinn í gær og þar er nú margur maðurinn. Ljúfur staður. Villtist inn á Pravda og það var dauði. Dó innra með mér úr ógeði svo ég gekk heim á leið og tók taxa frá Kringlunni. Með þessu móti sparast ca. 700 kall og maður verður allur ferskari.
Er annars farið að finnast þetta undarlegt mál, hve mikla tilhneigingu hinir ýmsu menn hafa til að klappa mér á kollinn. Ég veit að ég er alveg 20-30 cm minni er flestir karlmenn og að etv liggur þetta beinast við og einnig að ekkert illt býr að baki en málið er bara að þetta kveikir í einhverju innra með mér (ekki neinu kynferðislegu),bara morðæði! Ég snappa þegar (ávallt) karlmenn klappa mér á kollinn. Þoli það ekki. Hata það. Reyndar brýst þetta ekki út með ofbeldi heldur kraumar inní mér bara - sem er vont. Þetta er eitthvað úr fyrra lífi, ómeðvituð viðbrögð. Minnir mig á kött sem ég þekkti til einu sinni (er búin að gleyma nafninu núna) sem rikkti höfðinu í sífellu aftur ef maður klappaði honum öfugt á bakið eða eitthvað þannig. Magnaður andskoti. Hvað hét aftur kötturinn...?
En allavega þá er þetta klapp-á-koll situation alveg óþolandi. Er auðvitað líka bara a)niðurlægjandi og b)ruglar hárgreiðslunni.
Ekkert persónulegt. Bara merkileg félagsleg hegðun. Okei bæ!

föstudagur, júlí 02, 2004
Bless visa!
Ég er alveg gengin upp fyrir haus eftir vikuna! Búin að vera á farti í vinnunni alla daga frá 9-5 og svo hef ég farið í 4 MEGA göngur á kvöldin. Gekk með Stínos frá breiðholti niðrí bæ meðal annars - það er alveg toppurinn á jogginu!!! Er soldið stirð í hnjáliðunum.
En hér er tilkynning : Pétur Gordon, ég veit að þú lest þessa síðu í leyni og nú er ég með verkefni handa þér svo endilega láttu heyra í þér í emaili! :) sendu á mig lítið halló á totabene@hotmail.com (Elín sagði mér frá flugvallarveseninu ykkar :) )
Er annars ýkt hress bara! :D Ætla að spóka mig í kvöld í bænum. er orðin háð gulrótum (fékk fráhvarfseinkenni um daginn í vinnunni þegar ég gleymdi að taka nokkrar gullur með í nesti)
Svo er ég kominí debet. Visað er dottið úr gildi. Spara spara spara!!! Lokaði visanu með því að panta 4 cd´s á Amazon. Er orðin háð tónlist líka. Meri fíkillinn. HEf hæfileika til að verða háð öllu!!!
En þetta keypti ég :
ZERO7 - Simple things
Ikon - Ikon
MC Solaar - Cinquiéme as
Ilya - They died for beauty
Ótrúlega spennandi.
En annars er bara allt á fullu í hausnum á mér og ég get ekki sofið um nætur. Ætla að drekka bjór í kvöld, ekki mikið samt, og spóka mig down town. Bæjó í bili.