Ég skemmti mér svo makalaust vel í gær með nýstúdínunum mínum. Til hamingju aftur stelpur - og allir nýstúdentar! Hitti fullt af hressu fólki á röltinu, m.a. Unni útlandsfara sem er hér í stuttu stoppi.
Fór meðal annars á Brennsluna gömlu góðu í nótt. Þessi staður sem eitt sinn var alltaf kjaftfullur af fólki öll kvöld virðist núna ekki vera að plumma sig sem skemmtistaður - endar er það að dansa nauðsynlegur þáttur í skemmtun og það er ekki dansað á Brennslunni. Þetta er bara svo frábær staður til að sitja á og tala saman. Allavega minnir mig að það hafi ekki verið of hátt spiluð tónlist, en það er svo sem ekkert að marka mitt minni.
Ég verð að segja, svo ég haldi aðeins áfram þessu tali frá því um daginn um nýja tíma sem fylgja nýjum aldri (referring to þrítugsaldursins), að í stutta stund í gærkvöldi fannst mér vera svo óralangt í burtu frá því að vera busi í menntó og að upplifa allt fyrst. Sem er reyndar alveg staðreynd, fimm ár síðan það var takk fyrir :) En það var litli bróðir hennar Jennsínu sem vakti upp þessa tilfinningu hjá mér, hann er svo brakandi ferskur og að uppgötva heiminn og var alveg í essinu sínu í gær- og allir störðu agndofa og hrifnir á þennan ferskleika. Young spirit. Allt svo nýtt!! Maður fékk alveg í magann af að fylgjast með honum, hann er svo hress - og líka Mosi vinur hans og hinn sem ég man ei hvað heitir- og ég mundi svo skýrt hvað þetta var æðislegur tími. Mjög undarlegt að sjá pínu í sjálfan sig einhvern veginn svona utan frá. Langt síðan. En ég er nú bara tuttuguogeinsárs og er ung, fjandinn hafi það, en samt er eins og lífið sé bara svo miklu slípaðra einhvern veginn núna, og það líði hjá manni eins og í draumi, án þess að maður blikki. Maður þaf soldið að hafa sig til við að muna eftir að sjá lífið gerast fyrir framan augun á manni. Skiljiði mig? Það tekur bara alltaf eitthvað nýtt við og allt er gott, bara ólíkt.
Allavega.
Er annars alveg að farast því mig langar svo að tala um eitt sem ég má ekki tala um opinberlega strax...Og þið sem vitið um hvað er rætt skuluð steinhalda kjafit þvi annars mæti ég heim til ykkar og geri einhvern óskunda!! En þið fáið fréttir af þessu núna í vikunni kæra fólk, það varður opinberun og surprise í beinni!
Ciao!