föstudagur, apríl 30, 2004

ó mæ...þetta er húsið mitt :

húsið mitt

(þar sem stendur "after" - bjútífúl!)
...og sorry hvað ég er orðljót (referring to "fokking") en ég er búin að vera svona soldið lengi og veit ekki hvernig ég á að hætta að segja fokk. kannski finnst mér það bara gaman.
ciao!
ég elska, elska, elska sumarið!!!

já, það geri ég nú svo sannarlega!við sumar erum eins og kærustupar sem þarf að kveðjast að hausti. veturinn kemur þá og hann er eins og vondur soldánn sem heldur mér í búri sínu, lætur mig ganga í kufli og með blæju (metafóra fyrir vetrarfatnaðinn). ég engist um, get ekki beðið eftir hinum fagra græna prinsi til að bjarga mér! og í dag sá ég glitta í hinn fagurgræna prins. þegar ég var í strætó og var komin að Snorrabraut stakk eitthvað í augun, nokkuð sem mér fannst ekki eiga að vera þarna. þetta voru lauf. heilt tré var þarna laufgað. mikið var ég glöð! loksins er fokking sumarið komið!!!
en eins og þið vitið þá bý ég fyrir ofan snjólínu og þar eru engin tré orðin græn enn.
svo á ég líka afmæli á sumrin (sem margir flokka sem vor en þessum aðilum skjátlast, ég á afmæli um sumar) og það er eftir 23 daga í dag.
lifi sumarið!!!

fimmtudagur, apríl 29, 2004

Platoon

Ég horfði á mynd í gær (jújú, á BBC) sem heitir Platoon ( & önnur síða um Platoon). Þetta er mynd um stríðið í Víetnam. Hún var reyndar alveg ágætlega mikið, mikið, mikið óhugguleg og olli mér ógleðitilfinningu á köflum- samt hvet ég ykkur öll til að skoða stykkið. Sérstaklega er mér enn hlýtt hugsað til Elias, sem Willem Dafoe lék...þvílík dásemd. Hann var góði hermaðurinn. Það er svo gaman að horfa á svona hermannamyndir. Þó svo þeir hafi allir verið með svona 80´s hausklúta, mér fannst það bara kúl. Held að það sé eitthvað svona æskusyndróm ; allt sem er 80´s virkar vel á mann því maður hafði þetta alltaf fyrir augunum. Bróðir minn var mikið i 80´s og ég leit upp til hans og þar með fannst mér þetta æði klúl lúkk.
En þetta er ein besta mynd sem ég hef séð lengi.

miðvikudagur, apríl 28, 2004

Ný gestabloggun

Nú er kominn nýr snilldarpistill á gestabloggunina! Lilja Þórunn, sendiherra okkar í Finnlandi (hefur dvalið þar í vetur, en you know what I mean!) á bloggun vikunnar. Tékk it át...þetta eru orð að sönnu. Sammála með helvítis bragðvonda og ofurklístraða glossið!(varist sérstaklega glossið frá NONAME ; bragðast eins og gömul föt af ömmu þinni, án gríns!!!) Þetta er heilagur sannleikur :

bragðvont + ofurklístrað gloss + vindur + hár = helvíti á jörðu

Jæja, nóg af munnsöfnuði og glossi, nú er það heilög frönsk málsaga. Ciao!

þriðjudagur, apríl 27, 2004

Must have music

Er búin að vera á amazon að skoða tónlist sem ég ætla að kaupa bráðum. Þetta er ágætis listi sem er kominn í "Þórunn´s basket" og um leið og visa fer að refonction þá ætla ég að gera magninnkaup. Eða kannski helminginn eða 2/3 af listanum. Enda fær maður free delivery ef maður kaupir mikið í einu. Og það er bara jákvætt. Tónlist er frábær, enda er ótrúlega heilsusamleg og lífsnauðsynleg.
Þetta er topp 10-must-have-music-listiinn minn ; það sem mun óma hjá mér í sumar :

1. Lemonjelly.ky - Lemon Jelly (snilldartónar,

2. Spoiler - Röyksopp (þið kannist vonandi við þessa norsku snillinga (lagið úr Hjartslætti m.a.) og nú er þessi nýi diskur að koma, verður released í sumar)

3. Tridecoder- Lali Puna (þýskt elektró. Ég veit...en þeir syndja ekki á þýsku heldur ensku, sleppur því í gegnum tolllinn) (ef þið kannist við Isan þá er þetta svipað því, svona rólegheita elektró)

4. A Night at the Playboy Mansion - Dimitri from Paris (veit ekki af hverju ég er ekki löngu búin að fá mér þennan disk, algjör snilld!) (franskt house.)

5. Like Water for Chocolate- Common People (gott og sumarlegt hip-hop)

6. Hello Nasty - The Beastie Boys (sömuleiðis nokkuð sem ég hef alltaf ætlað að kaupa)

7. Trouser Jazz - Mr. Scruff (þessi kall er dj sem blandar alls konar tónum saman, jazz, chillout, coffee table, fusion, trip-hop etc. - eðal danstónlist)

8. Vertigo - Groove Armanda (líka klassík sem hefur verið lengi á "Þórunn´s wish-list")

9. Sound Shopping - Arling & Cameron (nokkuð sem K-Mart, aka. DJ Kisulóra, benti mér á fyrir nokkru og er ótrúlega flippað)

10. Cinquième as - MC Solaar (franskt rapp, gaman að því)

Aldeilis girnilegt. Er mjög spennt. Nammi namm - mörg, mörg nömm!!

mánudagur, apríl 26, 2004

Herra rassaklípir & Co.

Vinkona mín fór út að dansa um daginn. Hún lenti í þeirri hvimleiðu stöðu að hafa einhvern gaur utan í sér sem var sífellt að klípa hana í rassinn. Hún var víst að því komin á tímabili að kýla gaurinn því hann hélt áfram og áfram g áfram. Skil hana vel. Að gefa stúlku marblett á rassinn er ekki rétta leiðin til að heilla hana.
En rassaklípingar eru aðeins ein af fjölmörgum misheppnuðum hösslaðferðum sem maður lendir í. Margir láta sér ekki duga hið klassíska “I want you” lúkk (sem er mjög alvarlegur og stjarfur svipur, einna helst eins og blóðið í æðum viðkomandi sé frosið) heldur grípa til handaflsins. Sjálf lenti ég í því um daginn að hópur stráka sem var að dansa fyrir aftan mig greip í hárið á mér til að draga mig inn í hópinn til þeirra. Í stað þess að leggjast strax í gólfið og öskra “Já, dragðu mig á hárinu stóri, sterki maður og ég er þín!!!” þá setti ég hárið í tagl. Ekki heilluð.
Önnur útgáfa er gaurinn sem setur í 5.dansgírinn og dansar allt kvöldið upp við þig og allt í kringum þig líka þannig að sama hvernig þú snýðr þér er hann alltaf fyrir augunum á þér, kófsveittur og starandi. Yfirleitt er besta ráðið að fara af dansgólfinu um stund áður en viðkomandi reynir eitthvað meira.
Sumir menn ganga þó bara strax til verks, vinda sér upp að manni og anda “ástarorðum” (sem anga af bjór) í eyra manns. Bestu frasar sem ég hef heyrt lengi komu frá einum frönskum manni sem ég hitti um daginn. Hann lét meðal annars falla þessi fleygu orð “Farðu núna eða ég kyssi þig” og líka “Bara eitt kvöld, bara í kvöld” (fr: Juste un soir, juste ce soir). Þetta fékk mig bara til að hlæja. En hann var líka mikill samningamaður. Hann vildi fá að dansa við mig í 5 mínútur en þegar ég gaf engin jákvæð viðbrögð við því fór hann að prútta við mig um tímann “ok, í 3 mínútur, ok í 2 mínútur, í eina og hálfa...”. Fyrsta, annað og þriðja! *búmm* Konan í rauða bolnum er seld franska manninum við gluggann!
En sama hvað aðferðum líður þá er alltaf erfiðast að responda við þeim. Stundum þarf maður bara að vera virkilega töff, setja upp tíkarlúkkið og segja viðkomandi að hunskast í burtu frá rassinum á manni – ellegar vakna upp blá og marin og hárlaus daginn eftir.

sunnudagur, apríl 25, 2004

Gulrótin

Annars borðaði ég gulrót áðan sem var 30 cm löng. Er þetta mitt persónlulega met. Þetta er ekki spaug. Gæti banað manni (amk smágerðu dýri) með þessu fyrirbæri. Hvað er lengsta/stærsta grænmeti sem þið hafið borðað????

(vá hvað þetta er spennandi!?)
Tími heilögunar

Já, næstu þrjár vikur munu vera tími heilögunar hjá mér. Þessi orðmynd er etv algjört kjaftæði en hún hefur verið innleidd í orðaforða Tótu Ben og lýsir hún núverandi og tilvonandi ástandi mínu. Ég mun verða heilöguð af ofurheilögum lífsstíl, sem felst í því að ég mun ekki gera neitt nema lesa námsefni af ýmsum toga og stunda íþróttir þar meðfram. Ekkert áfengi mun koma þar við sögu. Né heldur nein partý. Né mikið af öðru fólki - ekki heldur fólki á sjónvarpsskjá. Öll orka og allur tími mun vera notaður í lærdóm.
Hins vegar mun ég leggja mig alla fram við að verða óheilöguð á ný -að flestu leyti - eftir þann 15. maí.

föstudagur, apríl 23, 2004

verzlópíkan Tóta Ben

Í nótt dreymdi mig að ég var að spila einhvern undarlegan leik sem var einhvers konar skotbolti, spilaður með svona bolta sem breytti um liti (gulur þýddi að þú áttir að skjóta einhvern en bleikur þýddi að þú áttir að kasta boltanum eitthvert áfram). Þetta var mjög gaman en það undarlega var að ég var gestur í árshátíðarviku verzlinga (svona intemporel draumur, veit ekkert í hvaða tímarúmi ég var). Þeir virtust vanir því að fá utanaðkomandi aðila sem vildu æstir spila þennan kúlaða leik þeirra og tóku mér opnum örmum. Svo var ég líka ýkt góð i þessum leik og var farin að mynda svona bandalög með hinum og þessum. Man sérstaklega eftir því þegar ég "drap" einhverja verzlópíku þarna sem var svona "gella #1" hjá þeim. Hún var ýkt fúl en allir hinir klöppuðu fyrir mér. Ég var orðin verzlópíka.
Fíkn

Nú hefur gestabloggið svei mér þotið af stað með inngangi Elínar, pistli um fíkn. Verði ykkur að góðu.

fimmtudagur, apríl 22, 2004

Bonjour!

Nei, ég er ekki að tala frönsku af því að ég sé búin að ná mér í sjóliða. Hef ekki lagst svo lágt að reyna einu sinni. Hins vegar er allt krögt af þessu hér í miðbænum. Við Bergur sátum einmitt á café í gær (á Segafredo við Lækjartorg,nýr & mjög flottur staður) og þá komu tveir franskir inn og þeir gláptu á brjóstin á bókstaflega öllum konum sem inn komu. Teygðu sig up og allt. Greyin, búnir að vera á sjó of lengi...Þeir eru eitthvað aðeins of sleezy...of...eitthvað of bara.
Í dag verður fyrsta gestabloggunin birt og það er Elín Birna sem mun birta tjáningar sínar. Til að lesa gestabloggunina smelliði á gelluna sem er að blikka ykkur hérna f ofan. Enjoy!

miðvikudagur, apríl 21, 2004

Je suis une femme, tu es un homme français

Þetta ætla ég að segja við franskan sjóliða um helgina.

þriðjudagur, apríl 20, 2004

Þrír = þrengsli

Einhver ykkar hafa eflaust heyrt mig tala um þátt á BBC sem heitir Three´s a crowd, en það er svona deit þáttur sem er sýndur daglega. Það eru sem sagt þrjár manneskjur sem verja degi saman, fara á deit og kynnast og svona (alltaf 2 kvk+1 kk eða öfugt, þannig að staka kynið þarf að velja milli 2 stelpna/stráka) og svo velur sá sem er "in controle" þann sem hann vill get it on with - ef svo má orða það. Svo fara þau tvö sem eftir eru í sitthvort herbergið um kvöldið og hugsa málið (eru í svona spes íbúð sem mating ferlið fer fram í) og þegar klukkuna vantar 10 mínútur í miðnætti verða þau að ákveða hvort þau vilja vera saman eða ekki. Ef þú villt get it on með hinni manneskjunni (alltaf þessi stóra spurning : Do I fancy him/her enough???) þá tekurðu föggur þínar (fólk getur lent í því að gista í þessari íbúð í marga daga ef það er ekki nógu hot fyrir fólkinu sem tekur þátt með því - eins gott að taka eithvað meira með en tannbursta!) og ferð fram og bíður eftir því hvort hinn aðilinn komi fram líka. Ef annar aðilinn, eða báðir, koma ekki fram þá birtist ný manneskja daginn eftir og ferlið endurtekur sig.
Þetta geta verið brill þættir! Stundum kemur einhver rosa hot strákur og maður óskar þess að maður sé gellan í þættinum og stundum kemur einhver algjör herfa inn um dyrnar (nýja manneskjan bankar alltaf svona voða dramatískt á dyrnar og gengur inn - og allir eiga svona þemalag sem er alltaf spilað þegar viðkomandi er valinn á deit eða til að gista, td var ein sænsk gella í dag og þá var spilað Cardigans -lagið "Lovefool" í kringum hana) og gæjinn velur hana en ekki sætu gelluna! Þá er maður alveg : Hvað er málið!! Hún er dóttir fílamannsins!!!! Þetta eru mikla ákvarðanir þarna og fólk er stundum alveg torn between two lovers eins og sagt er. Stærsta ákvörðunin er hvort maður eigi nú að drulla sér fram á þessum 10 mínútum f miðnætti eða ekki. Ég hef sérstaklega tekið eftir einu í þessu sambandi sem fer ógó mikið í taugarnar mér! ALLIR gaurarnir láta gelluna bíða eftir sér frammi alveg þangað til klukkan er orðin 23:59:59!!! Þetta er svo pirrandi. Helvítis egóistar. Og mér finnst þetta lýsa karlmönnum að stórum hluta. Þegar þeir vita að gellan er þeirra þá kvelja þeir hana og eru bara turned off eða eitthvað. Keep a girl waiting!!! Djös...#%&!!*
Annars væri þetta tilvalinn þáttur til að koma í stað Djúpulaugarinnar. Magnað, non?
Leiðrétting

Ég fattaði það þegar ég var úti að hlaupa í gær að þetta var rugl sem ég sagði í gær um franska útgáfu orðins bloggun. "Bloggique" myndi auðvitað vera þýtt sem "blogglegt" eða "bloggað" en bloggun myndi bara vera "blogg". Eða "bloggue". Eitthvað sem væri bloggað, eins og marsil.tk t.d. , væri þá "bloggué/e".
Vildi bara koma þessu frá mér sem snöggvast.
Annars hefur kraftaverk átt sér stað og ég hef sest niður við lærdóm. Er ekki enn orðin leið sem er jákvætt. Ætla að vera skynsöm og halda því áfram að vera dugleg. Tala betur við ykkur seinna bara - og um eitthvað annað en orðmyndun, ég lofa!!! *smack*

mánudagur, apríl 19, 2004

Kalle Mågñüussen

Ég ætla að vera soldið takkí og tileinka þessa bloggun (bloggun : dregið af því að blogga eitthvað...finnst þetta hljóma vel en gæti verið frönskuruglingur í mér ; "bloggique" væri þá "bloggað", notukunardæmi : "Þetta er rosa vel bloggað blogg!" ... hmmm...veit ekki...) ungum manni sem heitir Kalle Mågñüussen, stundum þekktur sem Sigga Sunna. Hann er kvenmaður og býr um þessar mundir í DK (Danmörku) og stundar nám við handavinnu. Kalle er heppinn ungur maður því hann hefur dvalið i París undanfarna viku í, var þar í handavinnuvettvangsferð. Helvítið á honum !!#%*! Ég bíð með ofvæni eftir að fá póstkort frá honum þaðan en ég skipaði honum að senda mér eitt á hverjum degi og hann féllst á það, þó með því skilyrði að hann fengi að skrifa eitt á dag og senda svo öll saman í þykku bréfi til mín. Jei! Spennó, spennó!
En Kalle er hugrakkur maður sem hefur lifað sælulífi í krummaskuði í DK -meira að segja á Jótlandi!- og þroskað andann. Skál fyrir Kalle!
Ef ég fæ mínu fram mun Kalle svo vera gestaskrifari hér á blogginu á næstu dögum.
Gestabloggun er einmitt hið nýjasta á marsil.tk. Sérstakur linkur verður settur inná síðuna á morgun sem tengir inn á síðu þar sem gestaskrifarar munu rita á marsil af og til. Þeir sem vilja ólmir skrifa sendi mér email bara - og ég tek fram að þetta er sjálfboðastarf, en ef ég verð sérstaklega ánægð með bloggunarframmistöðuna mun ég etv veita einhver verðlaun...þó ekki kynmök! Nema í afar sérstökum tilfellum.
Jæja, gott fólk. Þegar degi hallar fer allt að fljúga inní hausnum á manni. En ég hef uppgötvað að þetta hringiðusyndróm er eitt af því sem gæti gert mig að afar lélegum bloggara ; ég man aldrei atburði mjög lengi. En ef ég næ að skrifa niður eitthvað sniðugt sem ég finn áður en það gufar upp úr hausnum á mér mun ég beita mér fyrir því að hamra það inná bloggerinn og ýta svo á "publish" svo fréttirnar nái til ykkar.
Hætti núna því ég er eitthvað sérlega súr í hugsun...svona rugl á ekki heima hjá almenningi held ég. Bæ.

PS : Það var ekki hringt í mig frá Strætó BS í dag. Ég náði greinilega ekki kosningu hjá þeim inná strætómálaþingið mikla og gat því ekki borið fram kröfur ykkar um strætómál. Sorry Stína (þ.e. Kristín, en hún hafði sérstaka kröfu fram að færa um Kópavogsdruslustrætóana, enda helvítis rugl að láta þá bara vera á klukkutíma fresti á daginn! Hananú! Jæja, ég sagði amk einhverjum frá þessu Stína mín :) ). En þetta er þeirra missir.
Að lokum vil ég varpa fram spurningu hérna til ykkar. Er lummó fyrir stelpu sem er´83 módel að vera með strák sem er´86 módel? Og ég er ekki að tala um bróður þinn Jenný mín. Né neinn in particular. Þetta kom bara upp í umræðunni í dag. Ég veit nebblega að strákar hafa tendence til að vera með yngri stelpum - en hvað með stelpur? Segi bara svona. Svo eru þetta víst efnilegir menn, er það ekki?
Stop nú! Bæ!!
hósí!

Ég skrifaði færslu í gær sem ég pældi virkilega mikið í en hún gufaði upp einhversstaðar í netheimum. Sorry, your loss! hehehe...Er í púkaskapi því ég er búin að vera að vinna með púkadrottningunni Tinnu Ævarsdóttur í allan dag. Ég ætla að skrifa betur þegar ég hef afpúkast. Þarf fyst að far í Bónus og kaupa mér apríkósur. Bless!

laugardagur, apríl 17, 2004

Hungur og hollusta

Ég sit hérna inná lagernum í Pennanum. Þarf að fara að skrá lögheimili mitt hér á þessa skítakompu bráðum, er búin að vinna svo miki - læk a meiníak! Verð rosa rík bráðum!! Not...
Er annars að klikkast því ég er svo svöng. Þannig er mál með vexti að nýlega var tekið upp nýtt mataræði á heimili mínu sem krefst þess að maður borði minnst fjóra ávexti á dag, drekki tvo lítra af vatni (sem allir vita að maður á að gera reyndar) og einhver þúsund grömm af grænmeti (í alvöru, kíló af grænmeti á dag!). Ég er með þeim gömlu í þessum nýja lífsstíl okkar en er ekki alveg búin að venjast þessu fæði og er sísvöng...og máttlaus líka. Enda er mælt með því að maður hreyfi sig ekki mikið með þessu fæði, enda ómögulegt!!! Ekki gott f mig sem er byrjuðað þjálfa f 10 kílómetrana í ágúst og hleyp 5 sinnum í viku. Sjáum til hvort é ghaldist í þessu 100%, verð akannski bara með svona 50%. En þetta er alveg kreisí hollt og gott, mæli með því að fólk hakki í sig meira svona grænt og gott.
Nóg af rugli og hollustu!! Djös leiðindi...Nú er komið myndaalbúm á síðuna. Þið klikkið á myndina af gellunni hérna f ofan (ekki á mig, hina gelluna...hehehe...) og þá komist þið albúmið sem nú hýsir eitt sett af myndum. Það er ekki mér að kenna að myndirnar eru flestar af mér, Bergur tók þetta og hann á myndavélina líka - og setti þetta inn! Ég stefni svo á að fá fleiri myndir, líka af öðru fólki.
Man ekki meir, ciao!

föstudagur, apríl 16, 2004

Lífsins gæði

Ég þarf að leita til dáleiðanda bráðum. Ég þarf að láta dáleiða mig til að hætta að kaupa föt. Séstakleg með VISA-korti. Og ekki síður reyndar þegar ég ætla alls ekkert að kaupa neitt en ákveð óvænt að droppa inní einhvejra búð á leiðinni heim. Hvernig öðlast maður tilfinningu á ný fyrir peningum? Fyrir mér eru peningar ekkert stórmál. Ég kann ekki að safna mér fyri hlutum til dæmis. Ég er ein af þeim sem á ekki núll krónur heldur svona mínus fimmtíu þúsund. Soldið sárt að hugsa um það. Í þesari viku hafa tvö svona spondant buys átt sér stað. Reyndar er ég mjög ánægð með það sem ég keypti en það er eitt af einkennum sjúkdómsins og telst því ekki fullkomlega jákvæður punktur.
Lækning er þó í sjónmáli því vibbinn rennur út í júlí og þaðan í frá mun ég aðeins eyða peningum sem ég á en ekkei penigum framtíðarinnar. Sem illa haldinn visafíkill kvíði ég þó soldið þessum breytingum. Það verður erfitt að geta ekki óvænt dottið ofan á gersemar og keypt þær bara. Því er næsta plan hjá mér að verða ógeðslega rík. Þá get ég keypt mér föt alveg óvænt og samt verið í plús. Haha!!
PS : Vissuð þið að ef þið farið út að hlaupa t.d. og sleppið þvi svo að fara í sturtu áður en þið farið út á djammið munuð þið attract mun fleiri áhugasama einstaklinga af hinu kyninu (áhugaamit um náin kynni) en ef þið spúlið í burtu búklyktina og setjið á ykkur blómalykt? Þetta er vert að prófa um helgina!(pant ekki samt...) Léttur leikur fyrir þá sem eru til í tuskið! híhíhí... ;D

fimmtudagur, apríl 15, 2004

Mikið rosalega er ég orðin að miklu internet-dýri annars...Verð að fagna vorinu um helgina! Ætla að gera eitthvað sekmmtilegt áður en próflestur hefst fomlega á mánudaginn, eins og vera vera hífuð og dansa ... híhíhí... ;)
Internetskítur

Oj. Verð að segja frá fúlasta internet trikki sem ég hef lent í í langan tíma. Þegar ég fór óvart inná einhverja síðu áðan þá skaust upp einhver gluggi sem sagði að ég væri 50 þúsundasta manneskjan til að heimsækja hana og að ég hefði unnið ferð til Bahamas. Ég hnussaði bara á þetta og lokaði en þá poppaði upp gluggi sem sagði : Hey, ekki fara, segðu okkur fyst hvers vegna þú ákvaðst að kollekta ekki vinninginn þinn! Svo kom enn annar gluggi og þá var það stutt könnun : Afhverju vildirðu ekki hringja í okkur og kollekta vinninginn? og ég tikkaði í kassa sem sagði að ég hefði ekki tímt að borga símtalið. Þá kom nýr gluggi sem sagði : Leyfðu okkur þá að borga! Þarna var ég farin að hvæsa en þá kom þúsundasti glugginn og þar átti ég að fylla út nafn etc og eftir árangursalausar tlraunir til að loka þessu rugli fyllti ég þetta út og submittaði það. Þá kom nýr gluggi og í ljós kom að ég hafði ekki verið að vinnan neina ferð til Bahamas eins og hafði staðið allan tímann (ekki það að ég hafi trúað því, var með krossaða fingur því ég vilidi ekki fá einhverja vírusdruslu í tölvuna!) heldur er ég núna member í einhverjum klúbbi sem heitir "virtual voyage" og að mér skilst er svona nokkurskonar safn af ppt.slideshow af stöðum í heiminum. Ég vann sem sagt slideshow af Bahamas! Hjúkkídú, nú þarf ég sko aldrei að fara þangað!!! Hvað heldur fólk að maður sé eiginlega...grrr...Beware!!!Kveðja, Marsil, digitalísk rödd og fórnalamb internet ofbeldis.

miðvikudagur, apríl 14, 2004

Þvílíkur dagur...

Hæ aftur! Sem nýfæddur bloggari þá er ég að springa, ég hef svo mikið að segja. Mér er alltaf að detta eitthvað í hug sem ég þarf að segja - en ég ætla ekkiað segja það allt núna, það kemur að því , tökum eitt efni í einu, ég skrifa þetta bara hjá mér og vinn mig út listann. ;) hehehehe...
Talandi um skipulag og annríki, þá hefur þessi dagur verið rosalegur hjá mér, afar viðburðaríkur. Hef verið “framkvæmdastjóri” í dag sem fyrr segir í ritfangadeildinni minni kæru í A-18 (Austurstræti 18) og það er eins og ég hafi verið í einhversskonar starfskunnáttu prófi í dag, hef bósktaflega leyst allar erfiðustu týpurnar af vandamálum sem viðkoma ritföngum! Ætla ekki að útlista það hér, verð bara að fá útrás á samstarfskonum mínum í fyrramálið og segja þeim í smáatriðum frá þessum ósköpum. En ég stóð mig eins og hetja held ég bara, var rosa kúnnaglöð og tæklaði alla fýlupúka í hnút. Gott karma yfir þessu. Reyndar endaði dagurinn á því að ég fann flatlús á skríðandi á klósettskálinni á staffaklósti og fékk vægt móðursýkiskast en ekki eins slæmt og þær konur sem uppgötvuðu að þær gætu verið með kvikindið skríðandi um á sínu allra heilagasta þar sem þær setjast alltaf á klóið. Ég geri aldrei slíkt sem betur fer. Hjúkk!
Annað sérstakt atvik átti sér stað þegar ég var í strætó á leið heim. Það kom kona sem settist hjá mér og og hún reyndist vera frá Gallup og vildi vita hvort ég hentaði sem einstaklingur í svona umræðuhóp um strætó. Ég sagði auðvitað já. Þetta er mitt gullna tækifæri til að létta á hjarta mínu um strætómál, verandi einn af íbúum 111-unnar. Ég sagðist sko endilega vilja koma og tala um strætó. Ætla að beita mér með hörku fyrir málum námsmanna sérstaklega í strætókortskaupum. Svo fær maður víst grænt kort í laun, not so bad, nema hvað að ég keypti mér auðvitað rautt kort einmitt fyrir þessa örlagaríku strætóferð. Þannig að ég er orðin strætópólitíkus, sit á strætóþinginu mikla og vil ég með glöðu geði hlusta á tillögur frá ykkur öllum um hvað betur mætti fara í strætómálum. Speak out people!
Allavega. Mikið er ég nú glöð að þið séuð glöð með þessa síðu, hlakka til að skemmta ykkur með orðum og glaumi í framtíðinni. Ég hef komist að því að ég er efnilegur bloggari að því leyti að ég þarf stöðugt að vera að skrifa og tjá mig og þetta er eitthvað alveg nýtt fyrir mér, svona opinber skrif. Gaman að sjá hvernig fer. Versta að ég get ekki með neinu móti skrifað stutta texta...þetta verður þá bara svona ritgerðablogg. Skal reyna að vera hnitmiðuð. En það hve mikið ég blaðra fer eftir því hvenær ég fékk mér síðast kaffi. Og ég er að drekka kaffi núna þannig að það bunar og bunar og bunar...
Úff! “Three´s a crowd” er byrjað á BBC, blessó!
Kona með völd

Ég er rosalega bissý kona í dag og valdamikil, ég er nefnilega alein að stjórna hérna ritfangadeildinni. Námsmenn þurfa að vinna eins og aðrir og ég nota þetta væna uppllestrarfrí til að raka inn smá fúlgu. Og ég geri að með stæl, stekk beint í stjórnunarstöðu. Panta inn ritföng af ýmsum gerðum og segi fólki hvað það getur keypt og hvað ekki. Orð mín eru lög í þessum kjallara!...að minnsta kosti í dag.

þriðjudagur, apríl 13, 2004

Búrí bú! Hér ómar nú allt sem ég er að hugsa...já, hugsa sér, hef víst bæst í hóp bloggara...magnað. Og spennandi!
Bergur hjálpaði við uppsetningu (gerði þetta allt og hlustaði á skipanir frá mér um fagurfræðilega hluti mála) og nú er ég búin að læra soldið á svona template-dót, hvernig maður coppíar og peistar á milli og fær út eitthvað fallegt. Finnst þetta hreint geðsjúkt, en svo ótrúlega einfalt núna. En þetta er ekki alveg tilbúið enn þá, það á eftir að bætast ýmislegt við, gestabók, fleiri tenglar, myndir og svo langar mig að hafa svona gallerý, með myndum eftir mig...en það er samt kannski soldið asnó...ég er nebblega ekkert einhver listamaður, bara áhugamaður um sköpun.Sjáum til. Svo kemur líka svona síða sem verður með nokkrum upplýsingum um mig. Ég er hreinlega að leggja hjarta mitt út fyrir alþjóð hérna. Enda er ég nútímaborgari, ekki satt?
Meira seinna, er orðin rangeygð af þessu tölvustússi, ciao for now ;)
Nýtt blogg